Scribal Practices and three lines in Völuspá in Codex Regius

Aðferðir skrifara og þrjár línur í Völuspá Konungsbókar eddukvæða

  • Dr Patricia Pires Boulhosa Professor at Department of Anglo–Saxon, Norse, and Celtic, University of Cambridge
Keywords: Völuspá, Scribal practices, Codex Regus

Abstract

Í greininni er fjallað um ákvarðanir útgefenda varðandi þrjár línur í Völuspá, eins og þær koma fyrir í Konungsbók eddukvæða (GKS 2365 4to, ca. 1275–1300). Það eru (1) vísuorðið ,um himinjódýr‘ eða ,um himinjódyr‘ í 5. erindi (f. 1r, l. 10), sem hægt er að lesa á hvorn veginn sem er; (2) styttingin í annarri línu í 32. erindi (f. 2r, l. 4), sem hægt er að lesa sem ,mér‘ eða ,mær‘ (sem er óvenjuleg orðmynd af lýsingarorðinu ,mjór‘); og (3) leiðréttingin sem skrifari gerði sjálfur í versinu ,vörður Valhallar‘ í sjöundu línu 33. erindis (f. 2r, l. 7). Þessi dæmi sýna að stafsetning, lagfæringar og styttingar neyða jafnvel þann útgefanda sem leitast við að breyta sem minnstu til þess að velja á milli ólíkra leshátta sem til greina koma. Í greininni er lagt mat á ákvarðanir útgefenda sem hafa ráðið miklu um skilning fræðimanna á Völuspá síðustu áratugi. Færð eru rök fyrir því að fræðimenn og lesendur hafi hag af því að í útgáfum sé öllu haldið til haga sem skiptir máli fyrir textann, ákvörðunum útgefenda ekki síður en þeim gögnum sem þau byggja á

Published
2021-06-07
Section
Articles