Saints and sinners

Reflections on death in some Icelandic sagas

  • Margaret J. Cormack
Keywords: Icelandic sagas, Heroic deaths

Abstract

I Islendingasögum bregðast menn að jafnaði 'hetjulega' við dauða sínum, en í lýsingum á dauða manna í Sturlungu og konungasögum er oft að finna kristileg viðbrögð manna. Dauðamaðurinn játar syndir sínar, biðst fyrir og óskar jafnvel eftir því að aftaka hans verði teygð á langinn. Oft má þá finna atriði sem minna á efni úr helgisögum eða hliðstæður við líflát heilagra manna. í einu tilviki - frásögninni af drápi Sigurðar slembidjákns - hefur því verið haldið fram að líflátinu sé lýst sem píslarvætti og að sagan sé rituð í því skyni að gera hetjuna að helgum manni. Sú skýring er hugsanleg að slíkar lýsingar séu aðeins bókmenntalegt lánsgóss sem ekki hafi neina trúarlega merkingu. En með því að ísland hafði verið kristið í aldir þegar sögurnar voru skrifaðar, verður þetta að teljast ólíklegt. Ástand sálarinnar á dauðastund mannsins réð farnaði hennar í öðrum heimi. Hún mundi hljóta refsingu í hreinsunareldi fyrir allar ójátaðar syndir; og væru þær ofurþungar mátti synja hinum framliðna um legstað í vígðri moldu. Lýsing á syndajátningu og bænagjörð og samlfking við líf heilagra manna glæddi von um velfarnað sálarinnar í öðrum heimi. Og ef teikn bentu til þess að maður hefði verið saklaus veginn, styrkti það stöðu frænda hans í illdeilunum. Þetta mun hafa verið flestum söguhöfundum efst í huga, en þó verður einnig að gera ráð fyrir því að stundum sé reynt að gera menn að helgimönnum. í valdabaráttu á Norðurlöndum var algengt að reynt væri að upphefja fallna foringja í tölu dýrlinga, og margir þeirra voru helgir haldnir í sinni heimabyggð. Á íslandi virðist mönnum hafa gengið miður að koma upp slíkum héraðsdýrlingum, þótt stundum væri reynt. Hungurvaka og aðrar biskupasögur kunna margt að segja frá dýrðarverkum íslenskra manna, sem komandi kynslóðir gátu haft í minnum til merkis um heilagleika þeirra. í ritgerðinni er lýst beinum tilraunum til að hefja menn í flokk dýrlinga. I síðasta hluta ritgerðar er fjallað nánar um sögur þriggja íslendinga og sýnt hversu þær megi túlka samkvæmt því er að framan segir. Ég rek fyrst það sem Marlene Ciklamini segir um feril Sturlu Sighvatssonar og fylgi túlkun hennar: Sturla var mörgum syndum hlaðinn, en iðraðist þó í tæka tíð fyrir dauða sinn. A sama veg má túlka þróun Þorgils skarða, en bænir Brands biskups virðast þó valda því að hann snýr huga sínum til trúarinnar undir lokin. Aron Hjörleifsson er sýndur sem góður Kristsmaður (að minnsta kosti á mælikvarða miðalda), en eini dýrlingurinn í sögu hans er Guðmundur biskup Arason. En Hrafns saga Sveinbjarnarsonar er hins vegar hlaðin af helgiefni, og má vel vera að höfundur hafi litið á Hrafn sem helgan mann og vænst þess að saga hans mundi stuðla að því að hann yrði tekinn í dýrlinga tölu.

Published
2021-07-20
Section
Peer-Reviewed