English

Höfundar

  • Annett Krakow Uniwersytet Śląski w Katowicach, Instytut Literaturoznawstwa Höfundur

DOI:

https://doi.org/10.33112/

Lykilorð:

English, Icelandic

Útdráttur

Greinin fjallar um hvernig fyrirbærin örlög og girnd eru notuð sem drifkraftur frá sagnar í Hrólfs sögu kraka (elstu handritin eru frá sautjándu öld). Í dæmunum sem  hér eru tekin til athugunar beinist athyglin að lokaframvindu og orsakasamhengi  frásagnarinnar. Í sögunni mótast lokaframvindan af forlagahyggju þegar skýringin á ósigri Hrólfs í orrustunni reynist vera sú að hann er ekki kristinn. Hugtakið auðna er margræðara. Í sögunni virðist það merkja guðdómlegt orsakavaldandi afl sem þó er öflugra en Óðinn. Orsakasamhengi frásagnarinnar er sérlega áberandi í kaflanum um föður Hrólfs, Helga. Misheppnuð tilraun hans til að kvænast Ólǫfu hefur keðjuverkandi áhrif; með því að nauðga Ólǫfu getur hann Yrsu og síðar, með Yrsu, getur hann Hrólf. Þegar upp kemst um sifjaspellin og í kjölfar aðskilnaðar Helga og Yrsu er rakin keðja orsaka og afleiðinga sem leiðir til átakanna milli Skuldar og Hrólfs í lokaorrustunni. 

Niðurhal

Útgefið

2025-12-04

Tölublað

Kafli

Articles