Anecdotes of several archbishops of Canterbury

A lost bifolium from Reynistaðarbók – Discovered in The British Library

  • Bjarni Gunnar Ásgeirsson
Reynistaðarbók, enskir dýrlingar, helgisögur, Grímur Thorkelín, Dunstanus saga, handrit

Útdráttur

Árið 1787 gaf Grímur Thorkelín, ritari Árnanefndar, Thomasi Astle handritasafnara tvö pappírshandrit og tvíblöðung úr bókfelli. Síðar komust þessi handrit í Stowesafnið og eru þau nú varðveitt í British Library. Pappírshandritin hafa að geyma texta sem skrifaður er upp eftir handriti í Árnasafni, sennilega af Grími sjálfum. Skinntvíblöðungurinn er aftur á móti ritaður á fjórtándu öld. Á honum er að finna samansafn sagna af enskum biskupum, aðallega erkibiskupum Kantaraborgar, og stuttan formála. Sá sem setti safnið saman hefur notfært sér og aðlagað texta sem þegar voru til í íslenskri þýðingu, eins og Dunstanus sögu Árna Lárentíussonar. Ekki eru þó allir textar safnsins varðveittir annars staðar svo vitað sé. Tvíblöðungurinn er skrifaður af sama skrifara og skrifaði hluta Reynistaðarbókar í AM 764 4to og þegar betur er að gáð kemur í ljós að tvíblöðungurinn hefur upprunalega tilheyrt sama handriti. Aftasta frásögnin á tvíblöðungnum segir lífssögu heilags Kúðberts en niðurlag sögunnar er að finna efst á bl. 36r í AM 764 4to. Þá er þess getið í handritaskrám Árnasafns sem settar voru saman á fyrsta þriðjungi átjándu aldar að í AM 764 4to séu sögur af erkibiskupum Kantaraborgar, en þær er ekki að finna þar núna. Því virðist sem Grímur Thorkelín, sem hafði greiðan aðgang að handritum Árnasafns, hafi tekið tvíblöðunginn ófrjálsri hendi áður en hann hélt til Englands, en það varð til þess að textar hans féllu í gleymsku í meira en tvær aldir. Í greininni er fjallað um feril tvíblöðungsins og er skrift og stafsetning skrifarans rannsökuð og borin saman við hönd E í AM 764 4to. Þá eru textarnir raktir til uppruna síns og vinnubrögð samsetjara safnsins skoðuð. Í lokin er birt stafrétt útgáfa sagnasafnins sem teygir sig frá Stowe-tvíblöðungnum yfir í AM 764 4to.

Útgáfudagur
2021-12-01
Tegund
Peer-Reviewed